Saturday, December 04, 2004

Árshátíð

Það er nú vika síðan Árshátíðn var. Haldi var í Hvalfirði. Hún var þrælskemmtileg. Ég og Siggi vorum að vanda með okkar atriði á hátíðinni, video-annaáll, hver hefði getað á því? Svo var marturinn framúrskarandi. Aðalrétturinn var lamb eitthvað, og það var svo gott að það lak gersamlega ofan í mann. Ég fékk mér tvo kúfulla diska, þó svo að einn dugði vel. Skemmtiatriðin hepnuðust með ágætum. En eins og áður segir, þá var videoatrið sem, best að draga ekkert úr því, vakti lukku, enda síðasta atriði kvöldsins. Það má til gamans geta það að síðustu orð á myndbandinu voru þau fleigu orð frá Sigga "Á maður ekkert að fá að ríða hérna" og svo var mynd af cool hesti með sógleraugu, jahh, í hugleiðingum. Ballið var stórkoslegt, ég dansaði lítið framan af þar sem mikið var að fóli sem vildi snakka með mér. Svo dreif ég mig á gólfið inn á milli og dansaði við dömurnar. Aldeilis gaman. Efitr ballið var farið heim í rútu og flestir fóru í partí. Kvöldið endaði hjá mér um 7 leitið um morguninn, ekki alveg edrú, en hef samt oft verið fyllri. Þvílikt fjör.
Þessa dagana er hinsvegar ekkert annað að gera en að vinna verkefni og að hluta til læra (hvað sem það er).

1 comment:

Þórunn Gréta said...

Þú ert þá stór maður í stórum líkama með ennþá stærra hjarta :) Sjáumst vonandi á eysturlandinu innan tíðar....