Sunday, December 05, 2004

Allir að

Með tilkomu boggara hefur reynst auðveldara að fylgjast með ferðum vina sinna víðsvegar um heiminn. Ég var áðan að skoða bogg hjá hinum o gþessum og ég er allur í skýjunum. Angens og Einar eru t.d. í Ástralíu að spóka sig á sumartíma, Ásta Kristín er að ferðast um Argentínu og Chile í þessum skrifuðu orðum. Skotta er Þyrst í Englandi og drekkur sjálfsagt bara bjór, það muni ég gera, sem og líklega Vallý, og reyndar fullt af fólki sem ég þikki á þessu skerti þar, eins og Inga á Mýrum. Böggi, Ingi, Máni, Vigfús, Maggi, Sindri ofl. í Danaveldi. Hulda í NY og Vígþór í Seattle. Margir fleiri eru víðsvegar á jarðarskorpunni og kannski eru sumir komnir til tunglsins, en hver veit það. það er kannski ekki komið internet tenging þangað. Við erum í raun bara fá eftir hér á skerinu okkar í úthöfum.
Allt að gerast. Nú er ég kominn með útþrá. Þetta er ekki hægt hér í skammdeginu. Hvað er nám, þegar maður getur farið á brottnám. Það er nám að mínu skapi.

5 comments:

Sveinn said...

Og ég á Akureyri :(

Hlynur Gauti Sigurðsson said...

Og ég á Hvanneyri, sem er reyndar nokkuð gott, næstum því útlönd

Anonymous said...

Legg til að þú farir í heimsreisu og kíkir á eitthvað af þessu fólki : )

Agnes í Oz

Anonymous said...

og ég í Noregi
kv,
Kristján :)

Anonymous said...

og ekki gleyma mér. Er kominn til Reykjavíkur sem er nú hálfgert útland fyrir manni. Bjalladu í mig drengur. Sibbi