Monday, November 15, 2004

Reykingar

Ekki bjóst ég við að ég mundi taka til aðgerða á móti reykingum, en ég held að ég verði hreinlega að gera það. Ég fékk ógeð. Ég ætla að yfirgefa þau partí, eða samkvæmi að einhverju tagi sem er reykt innanhúss í óhóflegu magni, sem er alltaf. Þegar einn byrjar að reykja, finnur hann eitthvað annað fórnarlamb með sér. Það er sök sér að dýrka þessa starfsemi utandyra, en að velta þessari brælu yfir mann í rólegheitunum innandyra. Það er kannski svolítið skrítið að ég sé orðinn svo kröfuharður, þar sem ég hef verið tiltöllega umburðarlindur í garð reykingamanna og oftar en ekki tekið upp málstað þeirra. Ég veit ekki nákvæmlega ástæðumna fyrir þessari tímasetningu en mig grunar að þetta hefi byrjað á ballinu sem við fórum á á Ísafirði, maður þurfti að píra augun þar. Svo fór ég í miðbæ helvítis á laugardagskvöldið, þá átti sjálfsagt sinn þátt og að endingu var gamanspjall hér á hvanneyri heima hjá vinkonu minni, þar reyktu ALLIR inni nema ég og Siggi. Það er slæmt að þurfa að píra augun á heimilum en sú stækja sem fylgir manni heim, og lengra. Þetta er ógeðsleg fýla og fast í fötunum. Maður getur ekkik haft gott að þessu. Loksins að ég áttaði mig.

6 comments:

Sveinn said...

Hmm. þar sem ég er duglegasti kommentarinn á þig þá verð ég að segja að ég minnist að hafa séð þig með pípu í munni einhverntíman getur það verið?? og að þú ráðist svo á þína eigin fjölskyuldu (Reykingafólk) með þessum hætti. Fussumsvei Hlynur Fussumsvei!!!!. Já by the way ég er hættur að reykja hætti fyrri rúmu ári!!

Anonymous said...

Já veistu!!! ég gæti bara ekki verið meira sammála....maður verður bara gegnsýrður þegar maður kíkir á djammið!!!! :/ og já takk fyrir síðast...!!! það var gaman að hitta þig eins og vanalega!:)
kv. Fríða litla frænka :)

Anonymous said...

Já takk fyrir það!!! styð þig fullkomnlega!! Drífa M.

Anonymous said...

Blessaður. Verð ég að koma með athugasemd við skrif þín um reykingar eða getur maður líka bara boðið góðann daginn og sagt frá hversu gaman það er að vera var við þig. Tobbi

Anonymous said...

mamma er líka á móti reykingum. tobbi

Esther said...

Hey, já! Ég man nú eftir að hafa orðið vitni að pípunotkun líka! Hmmm... :)