Friday, October 29, 2004
Víðgelmir
Víðgelmir er hellir í landi Kalmannstungu, ekki langt frá Húsafelli, sem er á leiðinni up pá Langjökul vestanmeginn. Nokkrit Hvanneyringar, um 20 manns, í útivistarklúbbnum fókum nú í kvöld og þetta er stórkoslegur hellir. Víður geymur, langur líka, ef ég skildi rétt þá geturðu auðveldlega verið á bröltinu inn hann í þrjá klukkutíma. En við sem hópur fórum nú ekki langt inn, en stórkoslegt var þarna um að litast, dropasteinarnir, þeir faú sem við sáum, voru meiriháttar, mér skilst að það séu fleir er innar dregur í hellinn. Ég var náttúrulega með myndavélina mína og ógurlega sterkt ljós sem tekur gríðarlegan straum. Cameruljós sem notar samskonar rafhlöður og cameran, sem betur fer kannski, þar sem batterýið á ljósinu kláraðist og þó setti ég hitt á, og þar leiðis ekki með cameruna í gangi. Skemmtilegur göngutúr þar og skemmtilegur félagsskapur. Það sem var hvað magnaðast við þennan göngutúr og það sem var mest tilbreyting frá Hvanneyri var, að það var ekki rok
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment